fimmtudagur, ágúst 31, 2006

Lazy butterfly

Í dag fór ég í skólaferð til þingvalla.
Ég upplifði mig sem þunglyndan latann ungling í þessari ferð. Ég nennti ekki að gera verkefnið og tóka það ekki einu sinni út úr rútunni. Ég faldi mig inní rútu til að sofa og þegar ég þurfti að fara út þá svaf ég í þúfu.
Ég þoli ekki svona skólaferðalög. Sérstaklega ekki svona ofur hressa kennara sem vilja alltaf fara í leiki. og ég sem elska leiki. hreyndýraleikurinn er bara ekki málið.
Svo kúgaðist ég næstum af aulahrolli þegar við áttum öll að setjast niður að syngja öxarviðána á meðan æstir hlægjandi kínverjar bentu og tóku myndir eins og við værum dýr í dýragarði. Ég eignaðist líka einn kína vin sem kom og settist við hliðina á mér í fjöldasöngnum.

Mér finnst samt ömurlegt að leika hlutverk lata unglingsins, og dragast afturúr sofa og reykja bara.



Pabbi og mamma ætluðu að fara í bíó í dag, á Gretti 2, bara svo ég geti fengið að vera ein heima smá! Því pabba finnst ég of mikið fiðrildi. En ég stoppaði þau af, ég ætla nú ekki að láta þau borga á þá mynd, þau verandi fullorðið fólk og allt það. Svo ég fór bara á kaffihús.

En nú verð ég að fara að sofa í litla hausinn minn

góða nótt
sofið rótt
-Rósa

þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Enn eitt bloggið

Jæja ég er byrjuð að blogga aftur.
Ég er náttúrulega óákveðnasta manneskja sem ég veit um, alltaf að stofna nýtt og nýtt blogg.
Ég býst við að ég saknaði þess bara að blogga. Því aldrei mundi ég setjast niður og skrifa svona í dagbók eða eitthvað, en það er samt ágætt að bulla eitthvað á lyklaborðið.

Núna í augnablikinu er ég að kremjast. Mig langar svo að búa ein, eða eiga eitthvað þar sem er pláss.
Ég á náttúrulega svo lítið herbergi að ég get ekki hreyft mig.
Svo er alltaf verið að bæta við hlutum í þessa litlu íbúð að ekki get ég hreyft mig.
Svo er þetta litla rými alltaf svo fullt af fólki að ég get ekki hreyft mig.
Það er allt svo fullt af orku hérna inni að það er varla rúm til að hugsa.

Og ég hef rosalega hreyfiþörf. (ábyggilega bara því að ég ólst upp í svona litlu rými)

Ég þjáist einnig af ofsaskammti af snertiþörf, og þegar ég er að kjassast eitthvað í fjölskyldunni minni þá biðja þau mig bara að gjörasvovel að láta sig í friði í smá stund.

Einnig er ég afskaplega athyglissjúk, en mamma biður mig bara að fara eitthvað annað þegar ég er með show fyrir hana.

Ég held ég verði bara að búa ein, í risa rými, með myndir af fullt af fólki á vegnum sem áhorfendur, og bangsa til að kjassast í.




En núna var mamma að lofa mér að þau skildu bara í bíó og að fá sér að borða á morgun, svo að ég geti haft íbúðina útaf fyrir mig. (ég held ég sé erfið í sambúð)

-Rósa